Eitt blogg
Frásögn um ţađ sem gerđist á nokkrum útvöldum dögum - Ţetta er ekki eins langt og ţađ lítur út fyrir ađ vera
Nú skal segja
Bölv í sand og ösku
Kórárshátíđ
Þeir sem vilja lesa um…
- Atriði radda. Lesi nr. 1
- Hvað var í matinn. Lesi nr. 2
- Hvernig fólk hagaði sér. Lesi nr. 3
1.
Árshátíðin í gær var mjög skemmtileg og eftirminnileg. Allavega fyrir mig þar sem ég neytti ekki áfengis. Hátíðin var haldin á Korpúlstöðum sem er mjög stórt svæði. Í fordrykknum voru allir með grímur á sér. Það og stærð staðarins ásamt því hvað allir voru ennþá edrú og galakæddir gerði að verkum að mér leið eins og leikara þáttanna Gossip Girl og væri í stödd morgunverðarveislu hjá mjög ríkum manni. En það stóð ekki lengi, eða alveg þangað til ég mætti Aroni sem var með Carlsberg kassa á hausnum. Veislustjórar voru Björg og Hamingjutenórinn. Raddaatriðin voru misskemmtileg. Atriði eldri-Sóprana var án efa glæsilegast þar sem við elduðum matinn þetta kvöld. Altarnir voru með kraftbendlasýningu um það hvernig hinn “fullkomni Alt” væri undir mjög fölskum söng, sem er eitt af þeirra einkennismerkjum. Sýningin var mjög fyndin en hún innihélt myndir af hinum ýmsustu kórmeðlimum í undarlegum aðstæðum og stellingum. Nú Benni Sólisti tók lagið fyrir Tenórana þar sem restin af þeim söng bakraddir eða flögraði um salinn á fjaðurmagnaðann hátt. Innihald textans var það hversu mikið Tenór elskar Bassa. Yngri-Sópranar voru með samkvæmisleiki og tókst það bara nokkuð vel. Síðast og svo sannarlega síst ber að nefa atriði Bassanna. En þeir voru einnig með yngri- og eldri-Bassa atriði. Ég hugsa að yngri-Bassa atriðið hafi verið verra. Það var svo vandræðalega lélegt. Það var lag sem fjallaði um það hvernig væri að vera Tenór. Atriði eldri-Bassa var að Aron klippti Adda í fyrirpartýinu og það var mjög flott hjá honum og hefur það nú verið gert að hefð – Að Aron klippi fólk í fyrirpartýum. Að lokum tóku þeir lagið fyrir okkur og sungu lagið Brennið þið vitar með þeim frumlega texta; Brennið þið Tenór. En það var það eina af textanum sem salurinn skyldi.
2.
Forréttur – Graflax, melóna vafin í hráskynku, tómatar á mozzarella
Aðalréttur – Lamb, kartöflur, brún sósa, salat
Eftirréttur – Kaffi, konfekt, jarðaber, bollur með kremi innan í
3.
Edda – Átti án efa ölvunarmetið. Hún var mjög hávær, völt og aggressív. Hún á líka “að ganga í skrokk á fólki” metið og “hlaupa út í buskann” metið. Að lokum bætti hún fyrra “hellum bjór yfir Sólveigu Rögnu” metið sitt.
Sóla – Fór á bömmer og fór svo í sleik
Hnokki – Man líklega ekki eftir þessu kvöldi. Hann gladdi mig mikið með skeggi sínu, mjúkum danshreyfingum og góðri heimferð. En þar var hann dauður
Jón Helgi – Dansaði mikið og vel, borðaði magabakflæðistöflur og fór á léttann bömmer
Viktor – Þótti Rosalega vænt um alla, eins og oft áður þegar hann drekkur áfengann drykk. Dansaði mjög mikið og sagði mér að ég væri með fallegt bak
Fríða – Var orðin drukkin í fordrykknum ef mér skjöplast ekki. Málbeinið losnaði allverulega og hún var hin hressasta
Skarphéðinn – Hafði fjarvistarsönnun fyrir því að hafa ælt í pissuskálina vegna þess að hann var að æla í vaskinn á sama tíma. Hann endaði kvöldið á einstaklega subbulegann hátt en ég veit ekki hvort það sé hægt að kalla þessar aðgerðir sleik
Þorgerður – Fór ekki fyrr en um 3 leytið og margir veigruðu sér við að fara heim vegna þess að hún var ennþá í fullu fjöri
Örn – Hvarf mikið. Þurfti að segja mörgum hversvegna hann væri aldrei í sambandi við þá… Hann vildi bara ekki vera að trufla neinn
Doddi busi – Lagði upp með það markmið að fara í sleik við Siggu Soffíu en það fór ekki fram hjá neinum held ég.
Inga Hlíf – Var troðin niður af Ingu Maríu og steig ekki meira í fótinn það kvöldið
Inga María – Fór í sleik
Anna Sigga – Hitti Kormák í tunglskininu. Þau gerðu víst eitthvað meira en að fara í sleik…
Arna Sif – Superhero. Var að bjarga heiminum eins og venjulega. En lét það ekki buga sig og dansaði mikið við Andra Egils
Binni busi (held að hann heitið það) – Fékk risa skurð á fótinn og neitaði að fara á slysó þó að þetta væri ekki venjulega djúpt og að buxurnar hans væru ónýtar. Svo drapst hann
Nanna Fanney – Var lamin í klessu og varð mjög mjög reið og sár. En svo varð hún aftur glöð. Á einhverjum tímapunkti ákvað hún að fara og kvaddi að ég held hvorki kóng né prest
Elva Dögg – Þurfti að þrýfa allskonar. Þá rann af henni og hún varð pirruð. En svo sætti hæun sig við að vera bara edrú og dansaði manna mest og best
Sindri Snær - Fékk lánaðann maskara og fleira dúllerí hjá Hildi Kára
Ég – dansaði bókstaflega úr mér hálskirtlana. Þegar ég kom heim fattaði ég að það var byrjað að blæða. Hringdi í e-a konu sem sagði mér að fara á slysó. Ég kom heim þaðan kl. 7 í morgun. Búin að missa 3-4 bakka af blóði og búin að láta krukka meira í hálsinum á mér. Eins og það var nú gaman í fyrra skiptið.
Held að það helsta sé komið.
