Pósturinn
Sólveig: Halló?
Gaur: Gústi
Sólveig: U.. nei
Gaur: (bíður bara)
Sólveig: Sagðiru ekki Gústi?
Gaur: Jú. Ég er með bréf til Hólmfrídur
Sólveig: Jaaaá
Þennan baráttusöng hvet ég alla (konur og karla) til að læra. Og kunna rosa vel. Helst afturá bak.
Stolt siglir fleyið mitt
Stolt siglir fleyið mitt stórsjónum á,
sterklegur skrokkurinn vaggar til og frá.
Líf okkar allra og limi það ber,
langt út á sjó hvert sem það fer.
Stolt siglir fleyið mitt stórsjónum á,
stormar og sjóir því grandað ekki fá.
Við allir þér unnum, þú ást okkar átt,
Ísland við nálgumst nú brátt.
Ísland, gamla Ísland, ástkær fósturjörð.
Við eflum þinn hag hvern einasta dag,
Í stormi og hríð, hvert ár, alla tíð.
Ég vil líka fá að koma með einn HK stuðningstexta hér:
Oh ég er búin að gleyma honum. Skelli honum inn þegar hann kemur.
Nú er ég búin að vera ótrúlega baráttuglöð og vil ólm fá að útlista hér samtali sem ég átti við lækni áðan.
Læknir: Sólveig, lentir þú í einhverjum vandræðum í skóla sem barn?
Sólveig: Hm.. Ne. Mér var mjög oft hent út úr tíma þegar ég var í 5bekk en það var vegna þess að-
Læknir: Ég skil. Lentirðu nokkurn tíma í slagsmálum sem barn?
Sólveig: Ég réðst einu sinni á Ísak og þurfti að fara í hálskraga en það var sko-
Læknir: Eitthvað annað dæmi sem þú mans eftir?
Sólveig: Ég sparkaði einu sinni í magann á Júlíönu. En það var afþví að hún var fyrir, við vorum að kasta ullarsokk á milli okkar.
Læknir: Einmitt já. Manstu eftir því að hafa átt óvini sem barn?
Sólveig: Jájá.. en ekkert alvarlega ég var bara dálítið svona-
Læknir: Akkúrat já. Manstu eftir að hafa lagt e-n í einelti?
Sólveig: Sko í 2. bekk voru ég, Anna Lóa og Bjarki svolítið vond við Ólínu en ég var samt-
Læknir: Já, ég skil þig. Vartu oft skömmuð af kennurunum í barnaskóla?
Sólveig: Já ég var soldið oft að trufla tímann, ég tók samt ekkert eftir því ég þegar ég var að syngj-
Læknir: Já. Skil þig. Sólveig lentiru nokkuð í e-m handalögmálum síðustu helgi svo ég taki dæmi.. Á menningarnótt?
Sólveig: JáH. Það réðst á mig róni. Hann skoh-
Læknir: Já gott. Ég er komin með nægilegar upplýsingar. Takk fyrir. Eigðu góðan dag
Það er einungis fyrir þá staðreynd að ég hef ungt og hraust hjarta og að ég er ýmsu vön að ég dó ekki áðan þegar ég fór í apótekið. Þannig er mál með vexti að fólk sem er í endurhæfingu á Reykjalundi fær lyfin sín frítt. Sem er mjög gott mál. Nú þar sem ég er að fara að útskrifast af Lundinum góða fékk ég lyfseðla og gerði mér ferð í Lyfju á Smáratorgi til þess að fá þau. Ég labba inn og rétti píunni 3 mismunandi lyfseðla og mér var sagt að bíða. Ca. 2,4 mínútum seinna var nafnið mitt kallað upp og ég þusti að borðinu allsendis sallaróleg og bjóst við því að þurfa að skrifa undir einhvern pappír sem staðfesti að ég væri ekki fíkill. Eldri kona spyr mig hinsvegar hvort að ég sé ekki með lyfjakort og ég svara því neitandi. Þá segir hún mér að ríkið borgi ekki niður eitt lyfið sem ég er á, nema að ég sé með lyfjakort. Það verður þá bara að hafa það hugsaði ég - en þá kom skellurinn! Lyfið kostar þig þá 25.000 krónur! Ég fékk algjört áfall og hrópaði yfir allt apótekið Ertu ekki að grínast? Þar sem hún var ekki að grínast sagðist ég ætla að bíða aðeins með þetta og tók lyfseðillinn af henni. Það er ekki smuga að ég borgi svona upphæð! Bwaah. Svo ég bið ykkur fyrirfram afsökunar á því að ég gæti orðið erfið þangað til ég fæ þetta lyfjakort og get borðað lyfin mín. Namminamm
Ég er í svo miklu losti að ég get ekki skrifað neitt annað. Nema að HK vann Keflavík áðan.
Fyrir þá sem ekki héldu upp á gærdaginn - eða voru ekki í ástandi til þess að muna eftir deginum - hef ég ákveðið að rifja upp æsilegustu mómentin.
Í gaypride göngunni var heilmikið húllumhæ. Rakel var í grænum skóm með regnabogalitri teygju. Ég og Signý vorum hinsvegar frekar ömurlegar. Vorum bara í ótrúlega venjulegum fötum. Bætum úr því á næsta ári. Páll Óskar tryllti líðinn á risatrukknum sínum og strákafélagið Styrmir vakti mikila athygli fyrir einstaklega mikinn kynþokka. Hrafnhildur Viðars dansaði af sér fæturna uppi á bílpalli - en bílstjórinn var einginn önnur en Sæunn. Inga Ausa var gríðarlega heit - en hún lék í atriði sem kallaðist homma-hækjur.
Eftir gönguna góðu voru skemmtiatriði á sviðinu sem vöktu mismikla kátínu. Án efa hafði lagið Ég er eins og ég er vinninginn þar.
Nú um kvöldið var svo voða fínt matarboð heima hjá Rakel en þar sá Thelma um eldamennsku ásamt hjálparkokkunum: mér, Signýju, Sólborgu, Ingu Birnu og Karen.
Rakel fór gjörsamlega á kostum þetta kvöld og Karen fór á trúnó með mér þar sem hún sagði eftirfarandi: Sólveig Ragna, ég hef lært eitt í lífinu. Aldrei sofa hjá einhverjum sem þú vinnur með! Þetta er ráðlegging sem ég mun taka virkilega hátíðlega og fara eftir í einu og öllu. Signý hellti olíu á peysuna sem hún var í vegna þess að hún var svo ósátt við okkur Sólborgu að setja ekki meiri olíu í salatið.
Það vantaði Önnu Lóu og Örnu. Það var ekki alveg nógu gott. En næstu helgi er Menningarnótt svo við bætum úr því þá!
Ég tók mjög mikið af myndum - sem eru komnar hérna inn á. Aðallega fyrir Lomma litla.
Takk
