03. nóvember 2007 klukkan 19:07
ég kom heim klukkan 3 í nótt. Meðan ég var að rífa úr mér linsurnar vildi svo skemmtilega til að bróðir minn kom heim líka. Syngjandi. Og dansandi.
Bróðir: Hæ Elllskaan mín
ég: hæhæ
Bróðir: (e-ð babl inni í forstofu)
ég: hvað ertu að segja?
Bróðir: ég er að tala við sjáálfan mig
ég: um hvað?
Bróðir: heheh að jakkinn minn villl ekkki hlíðða mér!
Bróðir: blómið mitt?
ég: já?
Bróðir: er allt í lagi með þig?
ég: jájá afhverju spyrðu?
Bróðir: ég ffékk neibbla á thilfinnninguna áðan aþ þaþ værri einhver aþ vera vonndur
við liiltu systur mína
ég: já er það, neinei það var enginn neitt vondur við mig
Bróðir: ég var kominn með hnefann á loft. En Guðni sagði mér að hann væri alveg
róólegur. Hann er örugglega núna að leita að honum
ég: leita að hverjum?
Bróðir: þeim sem er voondur við litlu systur mína. Veistu. Einu sinni hefðum við núna
poppað og kúrað og hroft á einhverja mynd
ég: afhverju getum við það ekki
Bróðir: vegna þess að þú ert orðin 27 ára
ég: nei það er þú sem ert orðinn 27 ára
Bróðir: ég vinn þig samt ennþá í sjómann
Bróðir: (hvíslar) ég er farinn að horfa á (hrópar) BRAVE HEART!
Hurð herbergis míns er lokað.
1 mínúta líður.
Hurð herbergis míns er opnuð.
Bróðir: vertu ekkert að hlusta á mig..
ég: ha?
Bróðir: ég er bara vitleysingur. En það er allt í lagi því þú ert hvort sem er algjört fífl líka
Bróðir minn faðmar mig.
Bróðir: veistu hvað?
ég: nei?
Bróðir: ég veit hvað við getum gert. Núna poppppum við og horfum á x-files.
Ég er dregin inn á hans herbergi.
Bróðir: Sólveig. Ég helld að ég segi þér ekki nógu oft að ég elska þig. Þú ert neibbbla alveg ágæt. Ekkert svo klikkuð.
Bróðir minn faðmar mig. Mér er plantað í stól og sagt að bíða þarna meðan hann fari og poppaði handa okkur.
Á meðan fer ég inn á salerni að taka farman úr mér augnmálninguna. Bróðir minn kemur með poppið og labbar inn í herbergi til sín og lokar hurðinni á eftir sér.
3mínútur líða og ég fer í náttföt á þeim tíma. Ég opna herbergið hjá bróður mínum og þar lá hann með x-files í botni og ósnert popp í skál. Stein-sofnaður.